Hola chicos!
07.01.2006 15:48:28 / Bryndís

Náttúrulaus

Margt að gerast í kvöld.. Brúðkaup hjá Söru Natöshu og Olgeirs, þau verða svo ofurfalleg brúðhjón í kvöld, enda bæði rosalega myndaleg :)

Svo eru það Náttúrulaus tónleikarnir.. Byrja reyndar bara aðeins seinna en brúðkaupið svo ég verð að koma soldið seint þangað og fara fyrr úr brúðkaupinu :S Þoli ekki hvað það er akkurat ekkert að gerast suma daga en allt á sama tíma á hinum. Ég þori ekki að koma mikið seint því Björk spilar nr. 2... S.s. korteri eftir að tónleikarnir byrja. En mig hlakkar samt öfga til, og aðalnúmerið fyrir mig er nottla Damien Rice. Svo fylgir Sigur Rós og Björk fast á eftir. Ég sé mikið eftir að hafa ekki farið á Sigur Rós tónleikana. Hinir eru líka ótrúlega góðir (Hjálmar, Mugison ofl ofl) svo ég efast um að maður verði fyrir vonbrigðum.

Svo eru tónleikarnir búnir í kringum miðnætti og eftir þá veit ég ekki hvað ég geri... Ég er komi með algjört ógeð á bænum og öllu sem honum fylgir. Sérstaklega þegar það er farið að kólna svona, fólkið er orðið blátt í leigubílaröðinni sem nær niðrá lækjartorg oflofl..


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.12.2005 14:38:57 / Bryndís

Gleðilega hátíð :D

Ég var doldið léleg í ár, sendi engin jólakort. Nema þau sem voru útur landi, þau voru svona 10. Já og Vaka - ég sendi ekki til þín, fannst þú koma fyrr, en þú færð pakka þegar þú kemur ;) Og Eva - ég sendi ekki til þín heldur...duhh...

Svo þið sem eruð og voruð á klakanum -> Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár!! ;)

Takk fyrir kortin þið sem senduð mér :P Og gjöfina þið sem gáfuð mér ;) Það er víst alveg rosaleg pressa á mér núna að fá mér gat í eyrun. Ég fékk eyrnalokka frá bæði Andreu og Önnu með því skilyrði að ég myndi fá mér göt! Ætli maður geri það ekki þá... Reyndar síðast var það svo mikið vesen að ég var varla að nenna því (götin bara stungu af við fyrsta tækifæri). En það vantar oft svo mikið þegar maður er ekki með eyrnalokka finnst mér...

Svo er nottla alveg hefð að tala um gjafirnar eftir jólin ;) Ég var rosa ánægð með mínar. Myndavél frá mömmu og pabba, frá stelpunum fékk ég m.a. geisladiska, skartgripi, 2 buxur (íþrótta og náttfata) og fávitafælu.


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 18:23:37 / Bryndís

:)

Fékk úr prófunum í dag. Reyndar svaf ég yfir mig svo á sá engin próf (nema stærðfræði). Meðaleinkunin var 7, en það sem dró hana mjög niður var stærðfræðin :S s.s skítféll... fékk 3,3 í prófinu og svo lækkaði kennaraeinkunin mig niður í 3 (skilaði engum heimadæmum og var ekkert rosalega dugleg í skyndiprófunum heldur). Skrítið að falla í stærðfræði, ég afsannaði kenninguna hennar mömmu um að "ég hefði stærðfræðina í mér" ;)

En ég er samt í fínu skapi. Ég get tekið fallið upp, eða tekið endurtekningarpróf í vor, eða farið í fjarnám hjá vma eða e-ð eða kvöldskóla...

Hef ekkert meira að segja.. andrea era ð koma að ná í mig, ætlum að kíkja í búðir


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 19:21:00 / Bryndís

Próf........

Jább... tími miglu, nammiáts, hreyfingarleysis, svefnleysis og stress kominn.... Alltaf jafn skemmtilegur... Búin með 2 af 6 (frönsku og stæ) og ég var líklega að falla í mínu fyrsta fagi. stærðfræði 503.. Og það mest svekkjandi er að það er baaara útaf leti!

Svo reynir maður bara að horfa yfir prófin..jólaball og svo nottla jólin framundan... Það er svo geðveikt ferðalag á öllum e-ð... Elísa verður úti um jólin, Eva Ösp kemur heim, Vaka kemur rétt eftir jólin, Steinunn og Sigurborg nottla úti...

Í janúar eru styrktartónleikarnir... Damien Rice, Sigur Rós, Björk, Hjálmar, ofloflofl.... Og svo ökumat í janúar helst... Vaka kemur heim...

Vá ég hef ekkert að segja... er bara að blogga því ég er búin að vera svo ýkt léleg að því..

Andrea, Elísa, Magga og ég erum að gera bloggsíðu saman... Núna er ekki komið neitt nema nokkrir punktar sem við gerðum um hvor aðra.. Svo á eftir að koma myndasíða ofl... Svo ætlar Elísa vonandi að blogga e-ð útí Las Vegas, gera okkur hinar grænar af öfund..


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2005 16:04:22 / Bryndís

Morðhótanir

Jább... vinir mínir eru farnir að senda mér morðhótanir!! En af því að það er í formi keðjubréfa þá er það alltílagi!! Úff.....ég held að þessi keðjubréf séu löngu gengin aaallt of langt!

Ég hef verið að fá ákveðið keðjubréf frá hinum og þessum. Það er e-ð ljóð, sem segir að ég eigi að lesa í einrúmi.. Og ef ég les það ekki og sendi það svo ekki til 10 manns innan við 3 tíma þá mun ég eiga mjööög slæma lukku... Svo var mér sögð mjög dramatíska sögu af ungfrú Kelly Sedey sem var að koma aftur í vinnuna eftir að kærastinn bað hennar. Hún sá þetta ljóð í inboxinu en eyddi því án frekari hugleiðinga. Seinna um kvöldið hringdi lögreglan og sagði henni að unnustinn hafi lent í slysi og látist samstundis.

Önnur saga í sama e-maili um stelpu sem átti ekki 10 vini til að senda þetta e-mail til. Hún sendi þetta til þeirra sem hún var með e-mailið hjá. Seinna um kvöldið keyrði fullur maður á hana og hún dó...

Semsagt, ef þú sendir þetta ljóð ekki áfram, deyrð þú, eða ástvinur þinn! Og hana nú!

Og þessi bréf frá "hotmail" um að það þú þurfir að borga fyrir msn ef þú sendir þetta ekki til 18 manns, eða þau muni loka fyrir accountið þitt.... ég stórlega efast um að þau græði nokkuð á því að allir séu sendandi e-ð bréf fram og til baka... Allir sem hafa hotmail addressu að senda til 18 manns? Sé ekki tilganginn í því allavega, nema bara að setja óþarfa mikið álag á serverinn hjá þeim, og ég efast um að það hagnist þeim.

Þetta er smá munur frá keðjubréfunum sem voru að ganga þegar ég var í 6.bekk eða e-ð. Þá átti maður nú bara að setja póstkort í það og áframsenda, eða e-ð álíka..

Ég hef aldrei sent svona áfram, og bara fyrir ykkur sem ekki vita, þá er ég ennþá á lífi, allir mínir vinir og ég hef aldrei orðið undir trukk og lamast. (7,9,13 ;))

Og ég vil líka koma þessu á framfæri: Ekki fleiri morðhótanir takk:)


» 56 hafa sagt sína skoðun

01.11.2005 18:26:33 / Bryndís

epladagar

Ég er alveg ótrúlega ánægð með sjálfa mig í augnablikinu! Ég hafði aulast til að ath með e-ð block-checker dót, sem ég grunaði sterkt að var vírus en ýtti samt á linkinn af e-um furðulegum ástæðum (bara að taka það fram að það var ekki útaf e-i paranoiu um að e-r hafi blockað mig) :) Anyway, ég fann e-a frekar langsótta lýsingu á hvernig ég gat losnað við  þetta og tókst það alveg sjálf ;) Svo núna poppar ekki upp e-ð "find out who´s blocking you....." í hvert skipti sem þið talið við mig á msn :D:D:D

Svo er eplaballið að nálgast, skólinn skreyttur og alles. Ótrúlega jólalegt! Snjór úti og rauð epli útum allan skóla. Aldrei þessu vant þá keypti ég mér ekki ný föt fyrir ballið, verð í kjól sem ég átti fyrir. Hef alltaf keypt mér e-r föt fyrir böll (meiraðsegja busaböll!) en núna virðist ég e-ð vera að skána. Ætla heldur ekki í greiðslu né förðun né neitt þannig, bara að sjá um þetta sjálf :P nenni ekki þessu veseni, dýrt og alltaf svo mikið stress á epladaginn..

Ohh ég var að fá innheimtubréf frá intrum. E-r videoleiga í hafnarfirði sem ég veit varla hvar er var að senda mér sekt síðan um áramótin. Þá rámaði mig í að hafa leigt myndina með e-um en greinilega gleymt að skila.... Ótrúlega pirrandi að það skuli bara verið seint beint í intrum án þess að manni sé at least sagt frá skuldinni. Svo nottla hækkaði hún um helming... pirr pirr..

hmmm... hef ekkert meira að segja.... Hey já, þið megið endilega commenta eða e-ð, manni finnst maður e-ð svo óvinsæll ef enginn segir neitt :P (sérstaklega núna eftir að ég segi þetta ;))


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.10.2005 17:59:14 / Bryndís

So you must be the monopoly guy!

Jæja.... ætli þetta verði ekki týpískt helgarblogg... þið sem þolið ekki þannig hættið að lesa :)

Á föstudaginn var ég að vinna.. Var svo frekar þreytt svo föstudagurinn var bara rólegur... fór til Sunnu eftir vinnu og þar náði Anna í okkur.. við sátum aðeins í spjalli hjá henni og rölltum svo í bæinn.. vorum eiginlega bara labbandi um, klukkan var frekar snemma svo það var lítið að gerast.. kíktum aðeins á café cozy og þar settist kall hjá okkur að ræða við okkur um endaþarmsmök og kynlíf sonar hans... Eftir langar útskýringar frá okkur um hvað við vildum ekki heyra þetta, þá gáfumst við upp og drifum okkur út. Ótrúlegt hvað ég lendi alltaf í svona þegar ég fer þangað inn... Ekki það að ég sé alltaf þar, en það er held ég eini staðurinn sem mér dettur í hug sem hægt er að sitja bara og spjalla - lítið af fólki - ekki of há tónlist (allavega viðræðuhæft)... En ég hef tvisvar áður hrökklast út eftir að hafa heyrt einhverjar subbulegar sögur af eldri hommum... Einn var að segja mér frá manninum sem hann hélt framhjá konunni sinni með, og svo tvítuga gaurnum sem var svo góður í rúminu.... Anyway, þetta er allavega e-ð sem ungar menntaskólatátur vilja ekkert vita af!! Eftir þessa reynslu vorum við frekar daufar, fórum bara á vöffluvagninn og svo heim...

Í gær (laugardagur) var hin árlega lundaveisla hjá ömmu :) Það einkennist af steiktum lundum og helling af eyjafólki á ömmu og afa aldri.. Eftir að amma og afi komust að því hvað mér finnst reyktur lundi góður gerði hún það sérstaklega fyrir mig :) algjörar dúllur.. Svo fékk ég í nesti heim 4 reykta lunda :P mmmm..

Eftir það fór ég til elísu. Hitti þar Elísu (duhh), Arndísi, Lilju og Gauju.. Við náðum í Önnu og kíktum á rauða ljónið. Þar var e-ð kvennókvöld eins og svo oft áður.. Það var mjög fínt.. sérstaklega að fylgjast með fólkinu sem var í áttræðisafmæli í einum "salnum" á staðnum...  Við vorum þar alveg frekar lengi... Svo fóru ég, anna og kári á pizza pronto og sátum þar heillengi að rökræða biblíuna ofl :) og svo var bara haldið heim..

Lokapróf úr íslandsklukku er á morgunn... Svo ég ætla að koma mér í að læra!


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.10.2005 18:46:01 / Bryndís

jæja... hlaut að koma að því...

....ég var klukkuð... Ég er reyndar alveg ótrúlega útúr þessu.. En eins og ég skil þetta á ég að segja 5 staðreyndir um sjálfa mig...ekki satt?

1. Ég get verið alveg ótrúlega utanvið mig... sérstaklega í umferðinni (thank God I´m alive)

2. Er líka mjög kærulaus... stundum í umferðinni.. aðallega í skólanum.. erað taka mig á..

3. Ég eeelska að versla föt... Eiginlega alltof mikið. Keypti mér nýjan skáp í sumar, hinn var að springa, bakið á honum var búið að losna frá því hann var svo troðinn.. Samt finnst mér ég aldrei eiga nein föt.

4. Ég er frekar vanaföst í ákveðnum hlutum, sérstaklega á mat.. Þori sjaldan að prófa e-ð nýtt og því oft föst í því sama. Til dæmis fæ ég alltaf æði fyrir e-u (í augnablikinu er það capri sonne - ásamt pronto, caramel ofl). Svo ef ég fer útað borða þá fæ ég mér alltaf það sama á hverjum stað... númer 80 (ostborgari og kók) á american style - vel steiktur...kjúklingabringa á subway... í augnablikinu eru það kjúklingalundir á ruby tuesday með engri sósu... osfrv..

5. Ég þoli ekki falskt fólk, mislynt fólk og þá sem láta pirring, reiði og vont skap bitna á öllum í kringum sig.

úff... ok.. þá er þetta komið :)

Ég var að fá æðislegt símtal áðan - María elskulegi vinnufélagi var að segja mér að hún gat unnið fyrir mig á föstudag, sem þýðir að ég kemst í nefndarferðina! :D

Reyndar gæti það líka þýtt að ég komist ekki í sumarbústaðarferðina með bekknum um þarnæstu helgi, því ég lofaði Maríu að ég myndi vinna hveeeenær sem er fyrir hana :|

Í kvöld er ég að fara á Red Eye í bíó með Elísu, Önnu og måske Maríu. Svo á café Rosenberg á þunglindiskvöld (sem ég og Anna erum mjög líklega búnar að koma í hefð hjá okkur - alltaf á þriðjudögum). Þetta hljómar frekar illa kannski, en þetta er bara trúbator (Svavar) að spila róleg og góð lög.. Allavega leist mér ótrúlega vel á þetta síðasta þriðjudag, og ef ég verð ekki fyrir vonbrigðum í kvöld þá er þetta ný hefð hjá mér :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.09.2005 21:18:06 / Bryndís

Photos.heremy.com

Myndasíðurnar eru að detta út að miðnætti í kvöld!! Svo ég myndi save-a myndirnar sem þið eigið þar / viljið eiga..

T.d. er Steinunn með sína myndasíðu þar og ég og Elísa, ég held að Mæja sé með sína þar líka, man ekki urlið samt..

En Elísa og Anna voru að kíkja í heimsókn, ætla að sinna gestunum ;)

Svo er líka lítil ofursæt kanína í heimsókn yfir helgina... aaaalgjört rassgat! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 20:01:58 / Bryndís

ohhhhh

Ég sem var búin að blogga þessa fínu færslu - sem tók sinn tíma og greinilega of langan tíma því hún hvarf!! ég man yfirleitt alltaf eftir að copy-paste-a þetta hjá mér en þarf þess yfirleitt aldrei því ég er ekki svo lengi að tjá mig....

En já, ætla ekki að grenja yfir þessu, nenni samt ekki að blogga alveg aftur, set bara nokkra punkta:

Helgin fín, fór á gusgus, ótrúlega gaman.. Ennþá skemmtilegra þarsem ég fékk frítt/vip inn ;)

Er komin með aaaallt of lága mætingu :S (68% í raunmætingu) - svo stóð á bréfinu að ef maður er komin niður fyrir 80% er litið svo á að maður hafi sagt sig úr skólanum....obbosí

Reyndar er mikill hluti af því sjoppan - ég er gjörsamlega flutt þangað inn! Svo er alltaf gaman að breyta til, við erum komnar með ís, kaffi, heitt kakó og fleira :P

hmm... held þetta sé nóg í bili....


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2005 21:25:47 / Bryndís

Óheppni....

..sem kemur ekki á óvart... Bíllinn minn er greinilega ekki vinsæll á götunum. Ég var á ljósum um daginn og þegar umferðin var að fara af stað þá var bara bombað aftan á mig !  Núna er ennþá meiri druslufílingur í bílnum (sem var nógur fyrir) því það er ekki hægt að loka skottinu eftir áreksturinn og skottlokið hoppar alltaf upp og niður þegar ég fer yfir hraðahindranir ofl..

En ég skemmti mér bara ágætlega yfir þessu öllu og lét það ekkert skemma helgina.. Á föstudaginn fór ég í matarboð til ömmu og afa, svo í kósíkvöld til Elísu :P Reyndar voru flestir farnir svo ég stoppaði stutt... Kíkti svo á bsí og hitti önnu - lá þar eins og róni inní bíl að spjalla :P mjög nice.

Svo á laugardaginn ætluðum við Anna að fara að læra - komum við í 10-11 í lágmúla og keyptum helling af nammi... En svo á leiðinni til Önnu frétti ég af afmæli sem hafði farið framhjá mér, svo við skelltum okkur í djammgallan og kíktum aðeins í það. Fórum svo á Pronto og svo heim að horfa á Ace Ventura - When Nature Calls (2) - æðisleg mynd :D

Í dag fór ég á ruby tuesday með fjölskildunni og svo var taka tvö hjá okkur Önnu að læra - en mistókst aftur. Aftur var lagst uppí rúm með Ace Ventura í tækinu. Vöknuðum síðan seint og síðarmeir og ég held að lærdómurinn sé farinn fyrir bí...

Ég er öll að koma til, blóðeitrunin farin og skarlatsóttin líka. Streptokokkarnir (hvernig sem það er skrifað) eru annaðhvort farnir eða að fela sig.. Ég ætla samt ekki aftur að klikka á þessum sýklalyfjum og tek þau samviskusamlega...


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.09.2005 20:02:31 / Bryndís

Long time no C

Jáh... bara allt brjálað að gera... Samt alltaf tími fyrir óheppnina í mér... Smá yfirlit yfir það helsta sem kom í dag... jább, BARA í dag ;)

Ég fór til læknis í dag.... Er með sýkingu og blóðeitrun, skarlatsótt og streptókokka...

Ég týndi símanum hennar Önnu í dag.. Mig grunar að ég hafi gleymt honum á bílnum og keyrt í burtu.... Utan við mig? hvað meinaru?

En svo fann hann e-r Þröstur og hitti mig áðan og lét mig fá síman, reyndar vantar bakið á hann :S (síman sko)

En ég gerði bara gott úr öllu saman, fékk mér frí í skólanum í tilefni dagsins, fór í kringluna og smáralind, keypti mér m.a. nýjan síma :D

Svo er ég búin að fá smá skot hér og þar... Reyndar kannski ekki skrítið, það er ekki hver sem er sem setur diesel á bílinn.... En það var mánudagsmorgunn (fyrir viku) sem mér finnst réttlæta þetta smá.... en bara smá ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.08.2005 20:10:47 / Bryndís

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir manni

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Gunnari Óðni Einarssyni sem er 37 ára. Gunnar er á bifreiðinni JF-797, Suzuki Vitara árgerð 1997, sem er svört að lit. Á bifreiðinni er áberandi L merki að aftan. Ekkert hefur heyrst frá Gunnari eftir að hann fór að heiman frá sér þann 10. sl., en hann er talinn hafa farið út á land. Þeir sem gefið geta upplýsingar um ferðir Gunnars og eða bifreiðina JF-797 eru beðnir um að láta lögregluna í Reykjavík vita í síma 444-1103.

-Mbl.is

Mamma greyið varð alveg rosalega áhyggjufull þegar hún sá þetta.. Svo hringdi hún bara í kallinn sem svaraði strax.. Þá var hann bara að chilla í eyjum, bara datt ekkert í hug að vera e-ð að láta vita af sér...

Svo Gunni Lúx er semsagt fundinn......og reyndar týndist aldrei.. :D


» 11 hafa sagt sína skoðun

03.08.2005 17:51:26 / Bryndís

DV

Ég var að lesa DV í dag í vinnuni, og sá grein þarsem verið var að tala um þennan Villa WMX eða hver sem skammstöfunin var. Og svo var hinn hálfvitinn sem kallar sig Gilzeblabla að lýsa sinni skoðun á þessum Villa... Meðal annars sagði hann að hann væri einum litningi frá því að vera mongólíti. Ég veit ekki hvort þetta átti að vera eitthvað fyndið eða hvort hann sé svona kjánalegur. Eru ekki allir heilbriðgir einstaklingar einum litningi frá downs-heilkennum?

En hvort sem þetta var djók eða ekki þá hef ég skemmt mér rosalega að þessum gaurum, ásamt öllum þessum Íslensku mini-celebs sem eru bara þekkt fyrir það að koma í DV og sjást á djamminu....og auðvitað í ræktinni. Þeir eru eitthvað svo rosalega tilgangslausir.

En DV er alveg að gera það gott. Aldrei hafa verið eins ómerkilegri fréttir þar. Það var forsíðuefni þegar Fazmo fór út að grilla. Svo má nottla ekki gleyma þessum ógeðslegu 10 ára gömlum morðum og nauðgunum sem DV er alltaf að grafa upp og lýsa í verstu smáatriðum, það er ekki beint það sem mig langar að vera sokkin í á daginn, frekar les ég um grillveisluna.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.07.2005 01:00:05 / Bryndís

Myndos

Ég henti nokkrum myndum af litla snáða á myndasíðuna mína :D Og í leiðinni tók ég mér það bessaleyfi að setja nokkrar af brúðkaupi Bjarteyjar og Beni...

Endilega kíkið á :D

Prinsinn kom heim í dag af spítalanum, hann auðvitað fær alla athyglina frá okkur :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4